REIKNINGAR BOCA JUNIORS FRYSTIR
Argentínskur dómstóll hefur fryst
bankareikninga knattspyrnuliðsins Boca
Juniors vegna 360 miljóna króna
launaskuldar við Claudio Caniggia,
framherja Glasgow Rangers.

Meistarar Boca fá ekki heldur að kaupa
eða selja leikmenn fyrr en gert hefur
verið upp við Caniggia, sem lék við
hlið Maradona hjá liðinu á síðari hluta
síðasta áratugar.

Einn stjórnenda félagsins sagði þetta
mjög bagalegt fyrir það og þeir
framámenn og lögfræðingar innan þess,
sem hefðu sagt öruggt að málið ynnist,
fengju nú að finna til tevatnsins