Ítalir unnu Rúmena 3-0 um helgina og það voru þeir Fillipo Inzaghi, Marco Delvecchio og Fransesco Totti sem gerðu mörk Ítala.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Í þessum leik sló Paolo Maldini leikjamet fyrir landsliðið, en alls hefur hann spilað 113 landsleiki.