PÉTUR NIÐUR UM TVÆR DEILDIR
Pétur Björn Jónsson leikmaður hjá Fylki hefur ákveðið að leika á komandi tímabili með 3. deildarliði Fjölnis úr Grafarvogi. Pétur lék 14 leiki með Fylki síðastliðið sumar og skoraði hann 4 mörk. Pétur hefur áður leikið með KA og Leiftri.

__________

STEINN VERÐUR ÁFRAM HJÁ KA
Steinn Viðar Gunnarsson varnarmaður KA í knattspyrnu framlengdi á dögunum samning sinn við Akureyrarliðið um eitt ár. Samningur hanns hafði runnið út fyrir stuttu en KA-menn hafa tryggt sér krafta leikmannsins eitt tímabil til viðbótar.

__________

BJARNÁLFUR FRAMLENGIR VIÐ EYJAMENN
Bjarnólfur Lárusson skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Bjarnólfur sneri aftur til Eyja á síðustu leiktíð eftir að hafa leikið í Skotlandi og Englandi í tæp fjögur ár. Hann var sterkur á miðjunni hjá ÍBV á síðastliðnu tímabili. Það er því ljóst að ÍBV mun halda flestum lykilmönnum sínum, en þó er Hlynur Stefánsson hættur og Tommy Scram er farin til Bretlandseyja.