Ég hef alltaf jafn gaman af því í byrjun leiktíðar þegar félagar mínir ( sem eru poolarar) fara að spá í spilin fyrir komandi leiktíð. Dáist ég að bjartsýni þeirra en jafnframt vorkenni ég þeim því ég veit að þeir eiga eftir að verða fyrir vonbrigðum. Þeir búast nefnilega undantekningalaust við meistaratitli (og stundum meiru) og eru stundum svo kræfir að leggja pening undir (slæmt fjármálavit).
Sumum finnst kannski að ég sé svoldið fljótur á mér því ekki er nú búið mikið af leiktíðinni og Liverpool eigi nú svo sem ennþá séns. En ég segi og stend fastur á því að poolarar hafa bara ekki nógu sterkt lið.
Fyrir fróðleiksfúsa þá spái Ég Arseanal sigri í deildinni….. enda liðið heilsteypt og sterkt.