Arsenal, Bolton, Newcastle og Watford
tryggðu sér í gærkvöld sæti í 8 liða
úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í
knattspyrnu. Bolton vann Southampton í
vítaspyrnukeppni. Staðan að loknum
venjulegum leiktíma var 1-1 og 2-2
eftir framlengingu.

Heiðar Helguson tryggði fyrstu
deildarliði Watford 3-2 sigur á
úrvalsdeildarliði Charlton í
framlengdum leik. Hann kom inn á á
síðustu mínútu venjulegs leiktíma og
skoraði sigurmarkið 10 mínútum síðar.
Newcastle vann Hermann Hreiðarsson og
félaga í Ipswich, 4-0. Arsenal
sigraði Grimsby 2-0.