Nokkrir varnarmenn hafa verið orðaðir við Manchester United að undanförnu en ekkert hefur gerst enn. Nokkrir af þeim sem orðaðir hafa verið við liðið eru: Marc van Ommel, Brett Emerton, Lilian Thuram, Sol Campbell og svo hefur Rivaldo einnig verið orðaður við þá þótt hann sé ekki varnarmaður. Þar sem ég held með Rauðu djöflunum vona ég helst að af þessum varnarmönnum fari Lilian Thuram frá Frakklandi til Manchester. Hann myndi þá hafa 3 samlanda með sér þarna aftast en þeir eru: Mikael Silvestre, Laurent Blanc og Fabien Barthez. Vörnin hefur verið mjög götótt að undanförnu þannig að Manchester veitir ekki af góðum varnarmanni.