Dómari lækkaður um deild Það er ekkert sældarlíf að vera dómari í Enska boltanum. Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að dómaranum í leik Manchester United og Leeds um helgina yrði refsað. Dermot Gallagher sá um dómgæsluna í leiknum og nú er það ljóst að hann verður lækkaður um deild, og kemur til með að dæma í ensku 1. deildinni í stað úrvalsdeildar. Sambandinu fannst fáránlegt að Robbie Keane skyldi ekki fá rautt spjald í leiknum þegar hann veittist að David Beckham. Gallagher var mjög vel staðsettur þegar umrætt atvik átti sér stað en gaf Robbie aðeins gult.