Noregur: Rosenborg meistari Norska stórliðið Rosenborg varð í dag meistari tíunda árið í röð þegar liðið vann Brann, lið Teits Þórðarssonar, örugglega 6-2 á útivelli. Frode Johnsen skoraði þrennu fyrir Rosenborg í leiknum. Landsliðsmarkvörður okkar hann Árni Gautur Arason stóð sig með prýði í liði Rosenborg eins og hann hefur gert allt tímabilið. Nú er það bara spurningin hvort hann færi sig um set eða verði áfram í Þrándheimi. Þessi síðasta umferð Norsku deildarinnar var góð fyrir Íslendinganna, sem margir hverjir voru á skotskónum.

Gylfi Einarsson skoraði eitt fyrir Lilleström sem sigraði Tromsö 3-1, og hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Helgi Sigurðsson skoraði eina mark Lyn í 1-3 tapi gegn Bryne. Veigar Páll Gunnarsson skoraði í 2-4 tapi Strömsgodset fyrir Odd Grenland á útivelli. Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrir Stabæk sem vann Moss 2-1. Andri Sigþórsson skoraði fyrir Molde í 1-1 jafntefli gegn Víking Stavanger.

LOKASTAÐAN
1 Rosenborg 57
2 Lillestrøm 56
3 Viking 49
4 Stabæk 45
5 Molde 44
6 Odd-Grenland 42
7 Brann 41
8 Sogndal 32
9 Bodø/Glimt 29
10 Moss 29
11 Lyn 26
12 Bryne 22
13 Strømsgodset 19
14 Tromsø 16

Markahæstu Íslendingarnir voru þeir Tryggvi Guðmundsson og Jóhann B. Guðmundsson sem skoruðu sjö mörk á tímabilinu.

MARKAHÆSTIR
17 - Thorstein Helstad (Brann)
17 - Frode Johnsen (Rosenborg)
16 - Clayton Zane (Lillestrøm)
15 - Harald Martin Brattbakk (Rosenborg)
14 - Jostein Flo (Strømsgodset)
14 - Erik Nevland (Viking)