Vegna meiðsla verður hinn ungi og snjalli Árni Gautur Arason sem leikur með Rosenborg í Þrándheimi, ekki með gegn Norður Írum og Tékkum í næsta mánuði. Í hans stað kemur Ólafur Gottskálksson sem leikur nú með Brentford.

Ísland á að leika gegn Tékkum í Teplice 7. október og gegn Norður-Írum fjórum dögum síðar á Laugardalsvelli.