Eftir ódrengilega hegðum Stan Collymores hjá Leicester hafa þeir á bænum þar sett hann á sölulistann. Það síðasta sem hann gerði núna á dögunum var í leik gegn Everton þegar hann traðkaði á Paul Gascoigne sem eftir lá á jörðinni. Var hann einnig kærður fyrir atvikið og fékk á sig 3 leikja bann(þó lengra hefði það átt að vera, að mínu mati átti að stinga manninn í fangelsi!).

Spurningin er bara sú hvert hann heldur í burtu.