Arnar Þór Viðarsson leikmaður Lokeren skoraði eina mark þeirra í 1-1 jafntefli gegn Beveren í gær. Einnig má taka fram að Arnar Grétarsson sem líka er Íslendingur hafi spilað leikinn en um miðjann síðari hálfleik var honum skipt út af.

Lokeren er í áttunda sæti með 13 stig eftir átta leiki en efst er Club Brügge með 21 stig, fullt hús stiga, eftir sjö leiki.