Steven Gerrard segir "SKÁL"! Aðeins 24 fjórum tímum eftir að Sven Goran setti Frank Lambard úr enska landsliðshópnum vegna drykkjulátana frægu þá sást Steven Gerrard hetja liðsins og liverpool, vera að sulla í víni. Hann var staðinn að drykkju á bar í Southport til klukkan 2 eftir miðnætti á þriðjudaginn. Hann hefur beðist fyrirgefningar á þessu og Sven hefur samþykkt það og sagt að það verði engir eftirmálar.

Steven Gerrard hefur verið með einhverja englaímynd í enska og þótt vera mikil fyrirmynd á velli. Gazza vildi nú halda því fram að þeir tveir væru MJÖG líkir á velli og í hugsunarhætti. Flestir hlógu nú að því en það virðist vera samt eitthvað til í þessu núna.
Það má geta þess að Steven Gerrard missti bílprófið í eitt ár árið 1999 fyrir ölvun við akstur (neitaði reyndar að blása í blöðruna).

kv.
cul-de-sac