Núna er í gangi skoðannakönnun á Chelsea heimasíðunni(chelsea.co.uk) um flottasta markið í síðasta mánuði. Hver annar en Eiður smári er þar eftstur á blaði með bæði mörkin á móti Levski. Fyrra markið sem hann skoraði í þeim leik er núna búið að fá 1078 atkvæði eða 61%, þar á eftir kemur seinna markið í leiknum með 308 atkvæði eða 17,4% og svo Desailly með 161 atkvæði. Þetta þykir mér bara nokkuð gott hjá honum og sést það alveg að hann er nokkuð vinsæll þarna.

Aðrar fréttir frá Chelsea eru þær að Jesper Gronkjær er meiddur, eins og kanski flestir vissu en það kom bara í ljós á dögunum að hann yrði kanski frá allt þetta tímabil, jafnvel lengur.

Svo eru það landsleikir framundan, og er það helst að Chelsea Tríóið er í Enska hópnum þ.e.a.s. John Terry(sem er/var fyriliði í U21) Greame Le Saux og Frank Lampard. Hasseilbank kemur aftur inn í Hollenska landsliðið sem og Mario Stanic sem kemur inn í lið Króata eftir 3 vikna meiðsli.
“He's not the Messiah! He's a very naughty boy” - Terry Jones, Life Of Brian