Varalið Liverpool tók varalið Bradford í bakaríið í gær og vann 8-0. Robbie Fowler fór á kostum og skoraði 5 mörk og Berger, Heggem, Ziege og Camara spiluðu líka allan leikinn. Þetta eru góð tíðindi fyrir alla Liverpool aðdáendur því eins og Sander Westerveld sagði í viðtali á Teamtalk.com Þá er það skelfileg hugsun fyrir andstæðinga Liverpool að vita til þess að Liverpool er búið að vera að spila illa í byrjun leiktíðar og sé án 3-4 fastamanna en er samt í 4 sæti deildarinnar aðeins 3 stigum frá toppnum. Þegar allir verða orðnir klárir í slaginn getur hreinlega ekkert lið stöðvað þá!
kv.