Gagnrýni á Peter Crouch Að heyra menn stanslaust tala um það að Peter Crouch sé vonlaus knattspyrnumaður finnst mér svolítið leiðinlegt og alveg tilgangslaust.
Hann fær ekkert breik, menn tala illa um hann í sjónvarpinu, knattspyrnuáhugamenn keppast við að drulla yfir hann og sama má segja um aðra leikmenn og þjálfara.

Af hverju finnst öllum hann svona lélegur og hafa enga trú á honum? Er það af því að hann er 2 metrar á hæð og mjög grannur eða aðrar útlitstengdar ástæður?
Ég viðurkenni að hann er ekkert svona góðs fótboltamannslegur í útliti, en hefur útlit eitthvað að gera með getu manna?

Hann er alls ekki lélegur í fótbolta, hann er með góða tækni þrátt fyrir þessar löngu lappir, getur skallað vel, leggur vel upp fyrir samherja sína,
getur skorað og hefur góða sjón á leiknum. Semsagt þetta er allt það sem góður leikmaður þarf að hafa en hann hefur víst ekki alltaf heppnina með sér
en það eru það ekkert allir. Þegar hann spilaði fyrir Southampton heyrði maður ekkert svona um hann, en svo þegar hann kom til Liverpool
þá fóru áhangendur annara liða sem og Liverpool aðdáendur að keppast við að rakka hann niður og heyrði maður oft: ,,Haha, Liverpool búnir að kaupa Crouch, hann er ömurlegur“, eða eitthvað í þá áttina.

Jújú því miður var hann seinn í gang að skora og var mjög óheppinn með færin sem hann fékk, en engu að síður spilaði hann ekki illa, hann lagði til dæmis upp mörg mörk fyrir samherja sína og barðist og barðist. En svo fór hann að skora og spila enn betur en samt var ennþá gagnrýnt hann.

Í vetur spilaði hann 43 leiki fyrir Liverpool og skoraði 13 mörk en bjó þó til helling sem leiddi til marks, kanski ekki besti árangur hans en hann á heilmikið inni, hann er ungur ennþá og á eftir að bæta sig helling, á þessu tímabili vann hann sig inní enska landsliðshópinn fyrir HM og er núna búinn að spila 10 landsleiki og skora 6 mörk og þar á meðal þrennu í einum leik.

Þjálfarar og leikmenn hafa núna margir tekið sig saman og varið hann, og margir viðurkennt að þeir vilji hafa leikmann eins og hann í liði sínu
og allir þjálfarar yrðu heppnir að hafa svona mann í liði sínu. Því er ég alveg sammála, hann er einstakur leikmaður, kanski ekki sá sterkasti og ekki sá fljótasti en hann hefur samt eitthvað framyfir aðra sem ég get ekki útskýrt, að spila rúmlega 20 leiki án þess að skora mark, það er ekki gott, en hann hélt alltaf áfram að berjast
og að laukum braut hann múrinn og fór þá að skora, það sýnir að baráttu-, leikgleði og vinnusemi skipti miklu máli í boltanum í dag. Og hann hefur það allt í hæsta gæðaflokki.

Menn eru annað hvort bara blindir á getu hans eða bara vilja ekki viðurkenna hana.
Hvaða staðreyndir hafa menn fyrir því að hann sé svona lélegur? , og ekki bara ”hann er bara lélegur" staðreyndina.
Því vill ég endileg fá svar við.
Hook - Ups