Ég vildi nú bara vekja athygli á því að hér á huga er ágætis svæði fyrir símadeildina, eins og þú lesandi góður veist. Huga mönnum hefur síðan dottið það “snjallræði” í hug að bæta við undirsíðum fyrir öll liðin í úrvalsdeild NEMA EITT!!! Mér er spurn, hvað í %"*! er í gangi? Er Keflavík eina liðið í deildinni sem er ekki þess virði að fá umfjöllun um sig á sér síðu hérna. Mér, sem Keflvíkingi, blöskrar þetta framferði, og krefst þess að þetta verði leiðrétt eins og skot.