Dudek ekki til Liverpool Liverpool hefur dregið til baka tilboð sitt uppá tæpar 5 milljónir punda á pólska markverðinum Jerzy Dudek vegna þess að hann féll á læknisskoðun.
Jan Swaart framkvæmdarstjóri Feyenoord er samt sannfærður um að kaupin geti gengið i gegn og talar hann um að það sé munur á að falla á prófi og ekki klára próf. Hann telur að Liverpool þurfi ekki að setja þetta fyrir sig og að jafnvel verði gengið frá kaupunum síðar í dag, eða í tíma til að skrá Dudek í meistardeildarhóp Liverpool.
Það er jafnvel talið að nú snúi Liverpool sér að hinum efnilega markverði Coventry Chris Kirkland.