KR vann góðan sigur á Grindvíkingum, 2:0, í Símadeild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Einar Þór Daníelsson skoraði bæði mörk KR-inganna, hið fyrra á 38. mínútu en hið síðara á fyrstu mínútu síðari hálfleiks, en bæði mörkin komu eftir einstaklingsframtak Einars. KR-ingar verma ennþá fallsæti þrátt fyrir sigurinn, eru tveimur stigum á eftir fram og þremur stigum á eftir Val.