Staðan í Símadeild kvenna Þrír leikir voru spilaðir í Símadeild kvenna í gær. Fyrir norðan kom sameiginlegt lið Þórs/KA/KS nokkuð á óvart með því að skora þrjú mörk gegn KR. Það kom hins vegar lítið á óvart að KR-stúlkur settu 9 mörk og lokatölur því 3-9. Olga Færseth skoraði tvö af mörkum KR í leiknum og er því enn lang markahæst í deildinni. Í Hafnarfirði töpuðu FH-stúlkur 0-4 á móti Stjörnunni. Breiðablik og ÍBV mættust í stórleik kvöldsins og sá leikur endaði með markalausu jafntefli. KR nær því enn að halda í við Blika í toppbaráttunnni og munar nú aðeins tveim stigum á liðunum.

STAÐAN Í SÍMADEILD KVENNA
1 Breiðablik 10 (20) 23
2 KR 10 (36) 21
3 ÍBV 10 (22) 19
4 Stjarnan 10 (4) 16
5 Valur 10 (10) 12
6 Grindavík 10 (-23) 11
7 FH 10 (-19) 8
8 Þór/KA/KS 10 (-50) 3