Fylkir og ÍA leika í Evrópukeppninni í kvöld Í kvöld spila Fylkir og ÍA fyrri leiki sína í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Skagamenn leika í Belgíu gegn Club Brugge KV og hefst leikurinn klukkan 18:15 að íslenskum tíma. Ólafur Þórðarson, þjálfari og leikmaður Skagamanna, mun ekki leika með liðinu í kvöld og reyndar er það talið mjög ólíklegt að hann leiki meira með liðinu í sumar. Óli hefur átt við nárameiðsli að stríða undanfarnar vikur og nú hefur komið í ljós að vöðvafesting hefur rifnað. Óli segir að hann sé ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að láta staðar numið í boltanum vegna þessa.

Í kvöld kl. 19:00 hefst fyrsti leikur Fylkis í Evrópukeppni en hann fer fram á Laugardalsvellinum. Andstæðingurinn kemur frá Póllandi og heitir Pogon Szczecin. Liðið er mjög sterkt og hefur byrjað tímabilið ágætlega. Sævar Þór er tæpur og óvíst hvort að hann verði í byrjunarliði Fylkir. Stuðningsmenn hittast á Blásteini kl. 17 og þar verður andlitsmálun og einnig verður boðið uppá Fylkis-hárgreiðslu. Rútur munu ferja stuðningsmenn niður í Laugardal þar sem leikurinn fer fram. Miðasala hefst á Laugardalsvelli klukkutíma fyrir leik. Veður er gott og því ekkert að vanbúnaði að mæta á völlinn.








Á Laugardalsvelli leika Fylkismenn sinn fyrsta Evrópuleik gegn pólska liðinu Pogon Szczecin og hefst leikur þeirra klukkan 19.00