Fréttir (Tryggvi eftirsóttur og Andri skoraði) TRYGGVI EFTIRSÓTTUR
Hinn 18.ára KR-ingur Tryggvi Bjarnason hefur fengið boð frá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström um að koma út til æfinga hjá liðinu. Tryggvi er stór miðvörður. Fleiri norsk félög eru með Tryggva í sigtinu en hann er talinn með efnilegri varnarmönnum landsins. Einn forrráðamaður Evrópumeistara Bayern München hefur sett sig í samband við KR-inga og vill bjóða Tryggva og framherjanum Agli Atlasyni að koma út til æfinga hjá liðinu í nokkra daga.



ANDRI SKORAÐI TVÖ
Andri Sigþórsson fann loksins skotskóna sína í gær þegar Salzburg mætti Sádi-Arabíska liðinu Al Jazira í æfingaleik. Salzburg vann leikinn 4-2 og skoraði Andri tvö. Næsti leikur Salzburg er um næstu helgi er þeir spila við Helga Kolviðsson og félaga hans í Karnten.