Leikurinn í gærkvöldi á White hart lane milli Tottenham og West Ham var í daufari laginu. Aðeins eitt mark var skorað og var það varnarmaðurinn snjalli Sol Campbell sem skoraði með skalla. Joe Cole var eini góði punkturinn í leiknum og það er greinilegt að þar er stórsnjallur leikmaður á ferð. Hann skapaði meira eða minna allt í sókninni hjá West Ham. Svo var Rio Ferdinand líka góður í vörninni hjá West Ham. Það fer ekki á milli mála að West Ham er með mjög gott lið og eiga að geta gert mikið betur.