David May segist verða að fara frá Englandsmeisturum Man. Utd. ef hann vilji ná ferli sínum á skrið á ný.

May var ekki tekinn með til austurlanda fjær og þar að auki hefur Ferguson tekið númerið hans og gefið Juan Sebastian Veron það.

“Ef ég myndi verða áfram í þessi tvö ár sem ég á eftir af samningi mínum við félagið þá myndi ég hafa spilað 150 leiki á níu árum með félaginu sem er sorglega lélegt. Að spila með varaliðinu er heldur ekki gott.

”Ég held að Fergie muni ekki standa í vegi fyrir mér ef gott tilboð berst í mig," sagði May.