Erum við sammála um það að það eru 5 lið í ítölsku úrvalsdeildinni sem eiga séns í Scudettoinn ?!  Á pappírnum að minnsta kosti?!
Núverandi meistarar, AS ROMA.  Lítið breytt lið frá því síðast, en hey - þeir unnu deildina nokkuð örugglega með þessum mannskap.
JUVENTUS.  Misstu Zizou, en bættu við sig Buffon, Thuram og Nedved.
Ekki amalegt það!
AC MILAN.  Frekar daufir og óstabílir á síðasta tímabili en hafa keypt hressilega inn, losað sig við minni spámenn og líta vel út.
INTER MILAN.  Stórt spurningarmerki; ef Ronaldo mætir heill í slaginn er aldrei að vita hvaða töfra hann og Vieri hrista fram.  Keyptu m.a. Francesco Toldo í markið og Conceicao frá Parma.  Svo er Hector Cuper tekinn við þjálfun.
SS LAZIO.  Misstu Veron & Nedved, en fengu Mendieta í staðinn ásamt Stefano Fiore frá Udinese.  Sterkir…
Svo er spurningamerki með Parma.  Vissulega spila þeir skemmtilegan bolta en urðu fyrir ægilegri blóðtöku yfir sumarið - hver toppleikmaðurinn á fætur öðrum seldur burt.  Fengu þó Nakata frá Roma, Shabani Nonda frá Mónakó og S.Frey í markið frá Inter.
Eitt er víst - Serie A lítur betur út í upphafi leiktíðar en hún hefur lengi gert.