Nú er búið að draga í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Allir leikirnir eru æsi spennandi en leikirnir eru eftirtalnir:

Chelsea - Barcelona
Real Madrid - Arsenal
Bayern Munich - AC Milan
Werder Bremen - Juventus
PSV Eindhoven - Lyon
Ajax - Inter Milan
Benfica - Liverpool
Rangers - Villarreal


Fyrsti leikurinn sem ég nefndi Chelsea - Barcelona er leikur 16 liða úrslitana að mínu mati og líklega margra annara. Þessi lið eru líklega 2 bestu lið í heimi. Þetta verður virkilega spennandi leikir en ég held að Barcelona komist áfram.

Næsti leikur er Real Madrid - Arsenal. Þetta verða líka spennandi leikir. Liðinn eru í 3 og 7 sæti í sínum deild. Real í 3 sæti í spænsku og Arsenal í 7 sæti í ensku. Ég býst við því að Real taki þetta því þeir eru einfaldlega betri en Arsenal.

Þá er komið að leik Bayern Munich - AC Milan. Ég held að þetta og Chelsea - Barcelona séu mest spenandi leikirnir í 16 liða úrslitunum. Það kæmi mér ekki á óvart ef það yrði farið í vítaspyrnukeppni í seinni leiknum auðvitað. En Bayern taka það held ég.

Næsti leikur er Werder Bremen - Juventus. Ég er næstum viss um að Juve vinni þetta. Ég held að það sé bara það mikill munur á liðunum að Werder Bremen eigi ekki mikinn séns.

PSV Eindhoven - Lyon er næsti leikur. Ég býst við nokkuð jöfnum leikjum en PSV vinna þetta.

Ajax - Inter Milan er næsti leikur. Ég held að það sé nú ekki spurning hver vinnur þennan leik. Ég mynd tippa á Inter. Inter er í 2 sæti í ítölsku en Ajax er í 7 í hollenski og er mikill munur á þessum deildum.

Síðan kemur Benfica - Liverpool. Ég vona það heitast að Liverpool tapi þessum leikjum því ég er í eitt að mestu Liverpool fjölskyldu á Ísalndi að ég er eiginlega eini sem held með Man Utd í fölskylduni og er bróðir minn formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi og það er búið að stríða mér nó með hvernig Man Utd gekk í þessari keppni. En ef ég á að vera raunsær þá á Liverpool að taka þetta.

Síðasti leikurinn í 16 liða úrslitunum er Rangers - Villarreal. Villarreal tekur þennan leik með naumindum þó. Þetta verða skemmtilegir leikir.

Endilega koma með ykkar álit á þessari grein hjá mér og spá um úrslitin.