Lið KS frá Siglufirði náði að tryggja sér sæti í fyrstu deildinni á næstu leiktíð. Þeir unnu þá Aftureldingu úr Mosfellsbænum 2-1. Þvímiður veit ég ekkert um hverjir markaskorararnir voru. Næsta sumar verður þar með mjög skemmtilegt fyrir okkur Siglfirðingana, sjálfur er ég búsettur á Siglufirði og mun sjá hvernig KS munu standa sig í fyrstu deildinni á næstu leiktíð.