Parma eru í þann mund að ganga frá kaupunum á franska landsliðsmanninum Martin Djetou frá Monaco. Kaupverðið á þessum gríðarsterka varnarmanni er í kringum níu milljón punda og mun hinn 26 ára kappi skrifa undir fimm ára samning við Parma, sem er eitt af fjórum ítölsku liðum sem mun leika í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, þ.e. ef þeir ná að slá út franska félagið Lille í forkeppninni.