Eftir að hafa landað hinum stórkostlega miðjumanni Gaizka Mendieta er Sergio Cragnotti greinilega kominn í kaupstuð. Hann virðist vera búinn að tryggja sér félaga Mendieta hjá Lazio, argentíska sóknarmanninn Kily Gonzalez, sem er frrrrábær leikmaður vægast sagt! Ennfremur gengst nú hinn firnasterki framherji frá Atletico Madrid, Kiko Narvaez undir læknisskoðun í Róm. Gangi þar allt að óskum mun hann skrifa undir samning á næstu dögum.

Er Cragnotti ekki nokkurn veginn búinn að stoppa í götin sem Veron og Nedved skildu eftir?! Það myndi ég segja. Og kemur peningalega út í plús! Þetta er náttúrulega bara svaaakalegur bissnesskall!!!