Thailenskur stuðningsmaður Liverpool svipti sig lífi eftir að hann komst að því að hann hafði ekki efni á að kaupa miða á leik Liverpool og thailenska landsliðsins sem fram fer í Thailandi í kvöld.

Sakxhai Sithichai, öryggisvörður með meiru, stökk fram af fjórðu hæð á byggingu eftir að hafa þurft að ganga tómhentur frá miðasölunni þar sem hann átti ekki fyrir miðanum.

Hann notaði meðal annars setningu úr hinu fræga “You´ll never walk alone” lagi Liverpool-manna í sjálfsmorðsbréfi sínu: “I´ll never walk alone and I want to see Liverpool.” stóð meðal annars í bréfi þessa ógæfusama manns.

Já, ekki er öll vitleysan eins.