Guðjón Þórðarson gekk á þriðjudaginn frá einum af sínum stærstu kaupum á ferlinum þegar að fyrrum landsliðsmaður Hollendinga og leikmaður Ajax, Peter Hoekstra, skrifaði undir tveggja ára samning við Stoke á Britannia-vellinum. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en væntanlega hafa Stokarar þurft að reiða fram vænan skilding fyrir leikmanninn.

Peter Hoekstra lék mest alla síðustu leiktíð sem lánsmaður hjá FC Groningen eftir að þjálfari Ajax hafði gert honum ljóst að krafta hans væri ekki lengur óskað á Amsterdam Arena.

Þessi kaup ættu að hleypa miklum eldmóð í lið Stoke, enda telja menn það fullljóst að hér sé kominn leikmaður sem á eftir að vera einn af þeim betri í deildinni í vetur.