Galatasaray kemur ekki KR er úr leik í Evrópukeppni meistaraliða eftir 0-1 tap í Albaníu í dag. Klodion Duro skoraði mark Vllaznia beint úr aukaspyrnu á 62. mínútu. KR vann fyrri leikinn á Laugardalsvelli 2-1 og samanlögð úrslit 2-2 en Albanir komust áfram á marki skoruðu á útivelli. Vllaznia mæta tyrkneska stórliðinu Galatasaray í annarri umferð forkeppninnar. Leiðinlegt… ég hefði verið til í að fá blóðheita Tyrki í heimsókn á Klakann!

Byrjunarliðið KR:
Kristján -
Gunnar -
Þormóður (fyrirliði) -
Tryggvi -
Sigurður Örn -
(Sigþór Júlíusson 73 m.)
Þórhallur -
Sigurvin -
(Arnar Jón 66 m.)
Sigursteinn -
Roddie -
Moussa -
Guðmundur -
(Sergio Ommel 56 m.)

Þess má til gamans geta að Eyjapeyjinn Sigurvin á 25 ára afmæli í dag en hefði kannski viljað fá betri afmælisgjöf en tap á móti Vllaznia!