Grindavík vann Suðurnesjaslaginn Grindvíkingar unnu sætan sigur á grönnum sínum í Keflavík, 2-0 í gær. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindvíkinga, setti tvo leikmenn inná í hálfleik sem reyndist mjög vel. Hann setti Róbert Sigurðsson og Sverri Þór Sverrisson inná í stað Goran Lukic og Paul McShane og það tók varamennina tvær mínútur að búa til mark. Róbert átti fyrirgjöf beint á kollinn á Sverri sem skoraði gott mark. Grindvíkingar bökkuðu þrátt fyrir harðar sóknir heimamanna í síðari hálfleik náðu þeir ekki jafna metin. Grétar Hjartarson skoraði svo annað markið úr skyndisókn þremur mínútum fyrir leikslok. Þetta var fyrsti ósigur Keflavíkur á heimavelli í sumar.

Framar sukku lengra ofaní skítinn á Hlíðarenda í gær. Valsmenn unnu sanngjarnan 3-2 sigur og Ármann Björnsson kom þeim snemma yfir. Framarar sóttu hart að Valsmarkinu undir lok fyrri hálfleiks en ekkert var skorað. Strax á þriðju mínútu seinni hálfleiks skoraði Kristinn Lárusson og Ármann kom Val í 3-0 með öðru marki sínu. Þá vöknuðu Framara loksins af værum blundi og Ágúst Gylfason skoraði tvö mörk, bæði úr vítaspyrnum. En það dugði ekki til og Valsmenn hefndu fyrir bikarleikinn fyrir stuttu og eru komnir í þriðja sæti riðilsins.



Valur - Fram 3-2
1-0 Ármann Björnsson (11)
2-0 Kristinn Lárusson (48)
3-0 Ármann Björnsson (55)
3-1 Ágúst Gylfason (v) (59)
3-2 Ágúst Gylfason (v) (87)

Keflavík - Grindavík 0-2
0-1 Sverrir Þór Sverrisson (47)
0-2 Grétar Ólafur Hjartarsson (87)

FH - ÍA 0-1
0-1 Hjörtur Hjartarsson (4)



Markahæstu menn:
1 Hjörtur Júlíus Hjartarson - ÍA 9
2 Kristján Carnell Brooks - Breiðablik 5
3-6 Haukur Ingi Guðnason - Keflavík 4
3-6 Sævar Þór Gíslason - Fylkir 4
3-6 Sverrir Sverrisson - Fylkir 4
3-6 Guðmundur Steinarsson - Keflavík 4