Markalaust á Skaganum ÍA og ÍBV mættust í kvöld í níundu umferð Íslandsmótsins uppi á Skipaskaga þar sem ekkert var skorað. Skagamenn eru því eru því með fjórtán stig eftir níu leiki, rétt eins og Keflavík, ÍBV og Valur, en liðin eru í 3. - 6. sæti deildarinnar. Valur vann sigur á Breiðabliki, 2:0 að Hlíðarenda, þar sem Jón Gunnar Gunnarsson og Halldór Hilmarsson skoruðu mörkin. Níundu umferð lýkur með leik KR og Grindavíkur 22. ágúst nk..