Spænska pressan hefur greint frá því að Zinedine Zidane sé genginn til liðs við spænsku meistarana Real Madrid. Verðmiðinn á franska meistaranum var $67 milljónir sem gerir í pundum ca. 45 milljónir. Hverrar krónu virði, segi ég fagnandi !!! Þeir Luciano Moggi og Florentino Perez munu hafa hist í Sviss til að ganga frá samningnum í gær og er beðið eftir opinberri tilkynningu frá Madrid í dag.
Viljið þið reyna að ímynda ykkur Figo og Zizou spila saman á miðjunni?!? Það er bara varla hægt að setja saman magnaðri miðjudúett og það er gríðarlegt tilhlökkunarefni að fylgjast með þeim á komandi árum.
Eigum við ekki að spá því í lokin að Nedved komi í staðinn til Juve í staðinn !?? Sjáum til . . . .