Það er nú opinbert að Manuel Rui Costa er genginn til liðs við AC Milan og það er bara mesta snilldin í heiminum geiminum. 5 ára samningur með árslaun uppá $5millur. Til hamingju allir rauðsvartir áhangendur nær og fjær með þessa stórkostlegu viðbót við liðið okkar - maður gleymir bara næstum svekkjunni yfir komu Inzaghi…við gátum ekki fengið mikið betri mann á miðjuna hjá okkur. Maður getur bara ekki beðið eftir að næsta tímabil hefjist. Við munum rúúúúúla !!!

Og btw - Þó að Inzaghi sé kominn þá fer SuperSheva hvergi. Ef hann ætlaði að færa sig af hverju í kengúruskít ætti hann að vilja fara til TottarHann GottSpur?!? Jújú, Rebrov og það allt en samt!!! Af hverju ekki bara til Scunthorpe United og sleikja gólfið með stæl?!? Það er ekki heil brú í þessu bulli.
Forza Milan