Stjórn hlutafélagsins Fram Fótboltafélags Reykjavíkur hf. hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að Guðmundi Torfasyni, þjálfara meistaraflokks félagsins, hafi verið sagt upp störfum. Var ákvörðunin tekin eftir stjórnarfund í dag og mun Pétur Ormslev stjórna liðinu í þeim tveimur leikjum sem Fram á eftir í Landssímadeildinni.