Nú rétt í þessu var dregið í Evrópukeppni meistaraliða og verða móthverjar KR í fyrstu umferð albanska liðið Vllaznia Shkoder. Skráð er að KR-ingar eigi fyrsta leikinn heima, en forráðamenn KR reyna af fremsta megni að breyta því, þannig að KR leiki fyrsta leikinn úti, sökum leikja hér heima og til þess að leikmenn KR nái að vera komnir til Albaníu nokkrum dögum fyrir leik og venjast hitanum, sem búast má að verði um 35°C. Ef (þegar) KR leggur albanska liðið að velli verða mótherjar KR í annarri umferð ekki af lakari endanum; sjálft stórveldið, Galatasaray. Sumir segja þann drátt hafa verið mikinn happadrátt, en aðrir eru á allt öðru máli.

Skagamenn drógust á móti belgíska liðinu Brugge, og Fylkismenn á móti liði frá Póllandi, Pogon Szczecin.