Tekið af onefootball.com

Sergio Cragnotti, forseti Lazio, greindi frá því í dag að hann væri mjög vongóður um að landa Portúgalanum Manuel Rui Costa frá Fiorentina í sumar.

Framtíð Costa hefur verið í talsverðri óvissu undanfarnar vikur og er ekki víst að Fiorentina hafi efni á halda honum því fjárhagsstaða liðsins er víst slæm.

“Við eigum sameiginlega vini og þeir hafa fullvissað mig um það að hann vill koma til okkar. En það veltur allt á Fiorentina.

”Ég vill fá Rui Costa og ég er nokkuð viss um að ég geti talað menn til þarna í Flórens. Ég hef ástæðu til þess að halda að þegar á hólminn verður komið þá muni forseti Fiorentina sleppa honum," sagði Cragnotti.

Ef Fiorentina ákveður að sleppa honum þá má Lazio búast við harðri samkeppni frá AC Milan sem einnig hefur mikinn áhuga á honum.