Jæja, það lítur út fyrir að Peter Reid, Sunderlandsstjóra ætli að takast að versa framherja. Lilian Laslanders sem hefur spilað einhverja landsleiki fyrir Frakkland virðist á leiðinni “Ljósvang”. Fleiri lið hafa verið á eftir pilti sem gerði það að verkum að ég efaðist stórlega um að hann færi til Sunderland. Reid hefur nefnilega ekki gengið mjög vel í sínum fyrirhuguðu verslunarleiðangrum að undanförnu. Laslenders er 29 ára og spilar með Bordeaux.
Japönsk blöð halda því fram að japanski landsliðsmarkvörðurinn, Yushikatsu Kawafuchi, leikmaður The Yokohama F Marinos, sé hugsanlega á leiðinni til Bolton. Sjálfur segist hann ekkert vita um málið, en það væri gaman að verða fyrsti japanski knattspyrnumaðurinn til að gera díl við enskt lið. Þetta hefur nú að ég held ekki fengist staðfest, en skemmtilegt ef satt væri. Bergson myndi nú passa vel upp á að hann hefði sem minnst að gera!