David Beckham hefur lýst því yfir að hann vilji klára ferilinn hjá ManUtd, og vilji ekkert frekar fara að spila fótbolta á meginlandinu einkum þar sem United sé eitt besta knattspyrnulið heims, og einnig tjáir hann að sér og fjölskyldu sinni líði vel í Manchester. Ennfremur segir hann að sir Alex og hann séu búnir að útkljá vandamál sín, sem blossuðu upp á æfingu fyrir leik ManUtd og Leeds Utd í vor. En eins og flestum er kunnugt þá mætti Beckham ekki á æfingu þar sem sonur hans var veikur heima.
Hann segir jafnframt að sir Alex sé brillijant þjálfari, en geti stundum verið harður, en þannig þurfi góðir stjórar að vera.