Kevin Keegan hefur lýst yfir ánægju með leikform eins besta sóknarmanns Englendinga, Michael Owen. Owen hefur gegið ágætlega að smella knettinum í net andstæðinganna. Keegan segir að markið sem Owen skoraði á móti Brasilíu, í vináttuleik fyrir EM, sem og markið sem hann skoraði á EM hafi skipt miklu máli og aukið sjálfstraust kappans. Nú er bara að vona að hin nárameiðslin taki sig ekki aftur upp svo að strákurinn geti sýnt hvað í honum býr.