Jóhannes Karl til Dortmund? Þýska Bundesliga liðið Borussia Dortmund hefur sýnt áhuga á að fá Jóhannes Karl Guðjónsson, son Guðjóns Þórðarsonar, til liðs við sig, en hann hefur undanfarið leikið með hollenska úrvalsdeildarliðinu Waalwijk. Fran kemur á mbl.is að Dortmund hafi þegar boðið tvisvar í kappann, en Wallwijk hafi hafnað fyrra boðinu og sé nú með það síðara í skoðun. Jóhannes er samningsbundinn Wallwijk til byrjunar ársins 2005.