Nýr sóknarmaður hefur bæst í hóp fyrstu deildarliðs Dalvíkur í knattspyrnu. Kappinn kemur frá úrvalsdeildarliðinu Charlton og heitir Leigh Hales. Áætlað er að hann muni leika sinn fyrsta leik fyrir Dalvík gegn Þrótti þann 22. þessa mánaðar. Á heimasíðu Davlíkur kemur fram að hann hafi mætt á sína fyrstu æfingu í gærkvöldi, leikið hálfan leik og skorað gott mark. Þegar hann frétti af stöðu Dalvíkinga sagði hann: “Þá er að spýta í lófana og breyta þessu.” Hales hefur aldrei komið til Íslands áður og segist hlakka til framhaldsins.