Skagamenn hefja titilvörnina með stæl 32 liða úrslitum Coca-Cola bikarkeppni KSÍ lauk í gærkvöldi. Stórleikur umferðarinnar, sem talinn var vera viðureign Þórs Akureyri og ÍA reyndist óspennandi í meira lagi, en Skagamenn völtuðu yfir Norðanmennina og sigruðu sannfærandi, 0:5. Þau lið sem komin eru í 16 liða úrslitin eru þessi:

Grindavík
Víðir
Breiðablik
Valur
Keflavík
Fylkir
KR
KS
Fram
Víkingur R.
KA
Stjarnan
Sindri
ÍBV
ÍA
FH

Dregið verður í 16 liða úrslit eftir helgina, en þau fara fram 4. og 5. júlí næstkomandi.