Sheff Wed á Íslandi Eftir 5 ára hlé hafa íslenskir Sheffield Wednesday menn aftur opnað vef sinn.
Fyrri vefurinn var í gangi hérna um 1995-96, og með þeim allra fyrstu.

Hann dó hins vegar drottni sínum vegna annara verkefna, en er nú kominn upp og má skoða á http://sheffwed.betra.is

Sheffield Wednesday menn á Íslandi eru heittrúaðir og strangtrúaðir eins og vera ber. Það þarf líka á þessum síðustu og verstu þegar að félagið skuldar vel yfir milljarð króna, og hefur ekki efni á að semja við bestu leikmenn liðsins.

Á vefnum er að finna fréttir af Sheff Wed, brot um félagið og stuðningsmenn þess og fleira. Þegar að tímabilið hefst munu svo að öllum líkindum öll mörkin verða aðgengileg þar.

Ef þið hafið ekki nú þegar tekið rétta trú, komið og látið skírast :)

-Augustus
yfirugla
Summum ius summa inuria