Jamie Carragher Carragher fæddist 287 janúar árið 1978.Carragher er borinn og barnfæddur í Liverpool og þrátt fyrir dálæti hans á Everton í æsku tókst Liverpool að klófesta strákinn. Hann hefur leikið í vörninni þrátt fyrir að hann sé upphaflega miðvallarleikmaður. Carra getur einnig státað sig af því að vera leikjahæsti leikmaður U-21 árs landsliðsins í sögu Englands með 23 leiki. Hann var af mörgum talinn besti leikmaður Liverpool tímabilið 1998/99 en slæm byrjun á tímabilinu 1999/2000 varð þess valdandi að hann missti stöðu sína í byrjunarliði Liverpool í fyrsta skipti í 18 mánuði. En hann hefur komið sterkur upp aftur og hefur aldrei verið betri. Carragher er ekki snjall í sókninni en er afar illskeyttur í vörninni og komast ekki margir framhjá honum. Það er alltaf pláss fyrir hann í byrjunarliðinu.

“Mér er alveg sama hvar ég spila. Ég veit að þetta hljómar eins og gömul klisja en svo framarlega sem ég er í liðinu er ég ánægður. Ef stjóranum finnst að ég geti gert gagn í mismunandi stöðum þá er það hið besta mál.”

Hann er að fara að giftist sinni heittelskuðu Nicole Hart 27. Júni, hann á nú þegar 3 börn og eru strákarnir hans 2 strax taldnir hafa mjög góða hæfileika og gætu náð langt eins og föður sinn.


Vonandi að þið séuð eitthvað fróðari um Carragher eftir þennan lestur.