Einsog ég sagði hér í grein minni hér fyrr í þessari viku mun Patrick Viera opinbera þá ákvörðun sem hann hefur tekið um framtíð sína á miðvikudaginn.
En nú er það sagt að hann hafi sagt liðsfélögum sínum í franska landsliðinu það að hann vilji komast frá Arsenal sem fyrst, þar sem þeim tókst ekki að ná einum titli á Highbury.
Viera sem er staddur í Asíu til að keppa í álfukeppnini hefur ekkert sagt formlega en ef þetta er satt verður það mikið áflall fyrir Arsenal og Arsene Wenger, því þótt þeir muni fá ágæta upphæð fyrir hann verður erfitt að fylla í hans skarð.