Andy Roddie semur við KR Andy Roddie, Skotinn sterki sem hefur verið til reynslu hjá KR, hefur samið við KR. Í gær var allt útlit fyrir að ekki yrði af kaupunum, en samningsaðilar voru ósáttir um kaup hans og kjör. Um sexleytið í gær hafði hann svo samband við KR, hafði þá skipt um skoðun og hugðist vilja semja. Settust þá forráðamenn KR og hann við samningaviðræður, sem stóðu yfir til miðnættis, þangað til samningar náðust. Eftir á að fá leikheimild fyrir kappanum, en næsti leikur KR er á fimmtudaginn, við Þrótt í bikarnum.