Rosenborg sýnir Davíð Þór áhuga Norsku meistararnir, Rosenborg, hafa sýnt FH-ingnum Davíð Þór Viðarssyni mikinn áhuga, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. Davíð æfði með félaginu í síðustu viku og voru forráðamenn þess ánægðir með það sem þeir sáu til hans. Davíð, sem er 17 ára gamall, hefur gert þriggja ára samning við Fimleikafélagið og mun FH því fá eitthvað í sinn skerf, komi til brottfarar Davíðs, en sem kunnugt er leikur landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason með liðinu.