Ríkharður þriðji markahæstur Með marki sínu í gær varð Ríkharður Daðason þriðji markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi. Þetta var tólfta mark hans í fjörutíu leikjum, en afi hans, Ríkharður Jónsson hefur skorað 17 og Arnór Guðjohnsen 14. Ríkharður Daðason er sá 25. í röðinni til að ná fjörutíu landsleikjum fyrir Íslands hönd. Næstir koma þeir Þórður Guðjónsson, Pétur Pétursson og Matthías Hallgrímsson, hafa skorað 11 mörk fyrir landsliðið.